HVAÐ Á SVEITARFÉLAGIÐ AÐ HEITA?

Söfnun hugmynda um nafn sameinaðs sveitarfélags Helgafellssveitar og Stykkishólmsbæjar er hafin á BetraÍsland.is. Hún stendur til 1. júní nk. og er öllum opin. Verkefnið er unnið í samstarfi við Íbúar ses. sem sérhæfir sig í rafrænum samráðskerfum og rekur BetraÍsland.is.

Hægt er að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum í gegnum Ísland.is eða með nafni og netfangi. Þeir sem það gera fá tilkynningar um breytingar og athugasemdir við tillögurnar. Það er líka hægt að taka þátt nafnlaust og án innskráningar, en þá berast ekki tilkynningar. Allar tillögur munu birtast nafnlaust á vefsvæðinu. 

Æskilegt er að tillögur séu lagðar fram með stuttum skýringum. Þátttakendur geta lesið skýringar annarra og lýst skoðunum sínum á tillögum þeirra.

Heiti sveitarfélaga skulu samrýmast íslenskri málfræði og málvenju samkvæmt sveitarstjórnarlögum, og falla að þeim reglum sem útlistaðar eru í lögum um örnefni og reglugerð um störf örnefnanefndar. Sjá nánar á vefsíðu Örnefnanefndar.

Þeir sem treysta sér ekki til að nýta rafrænar lausnir er velkomið að koma tillögum á skrifstofu Stykkishólmsbæjar, eða fá aðstoð við að setja inn hugmyndir rafrænt.

Að lokinni hugmyndasöfnun verður farið yfir allar framkomnar tillögur. Sveitarstjórn sameinaðs sveitarfélags tekur ákvörðun um heiti sveitarfélagið. 

Smelltu hér til að taka þátt í hugmyndasöfnuninni á BetraÍsland.is.